Verkefnastjóri á framkvæmdasviði – Fjarðabyggð
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf
verkefnastjóra. Um er að ræða fullt starf.
Meginviðfangsefni verkefnastjóra verða að auka flokkun, endurvinnslu og
nýtingu sorps í sveitarfélaginu, auka eftirlit, samstarf og fræðslu við fyrirtæki
og íbúa er snýr að málaflokknum, auk innleiðingar á gæðamálum veitna
sveitarfélagsins (vatns-, fráveitu og hitaveitu).
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars.
Allar nánari upplýsingar um störfin eru á heimasíðu Fjarðabyggðar
www.fjardabyggd.is. Umsóknum skal skila í gegnum ráðningavef
Fjarðabyggðar, starf.fjardabyggd.is.