Verkefnastjóri á Austurlandi

Securitas leitar af jákvæðum og kraftmiklum verkefnastjóra í okkar frábæra gæsluteymi á Austurlandi.

Sem verkefnastjóri gæslusviðs á Austurlandi hefur þú umsjón með núverandi verkefnum sem og móttöku nýrra verkefna á gæslusviði. Sem meðal annars felur í sér mönnun vakta, samskipti við verkkaupa og starfsfólk, starfsmannamál, áætlunargerð og fleiri tilfallandi verkefni.

Ef þú…

  • Býrð yfir mikilli þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Hefur reynslu af mönnun verkefna og/eða umsjón verkefna.
  • Býrð yfir frumkvæði í starfi og getu til að vinna sjálfstætt.
  • Hefur gott vald á íslensku, bæði í riti og ræðu.

…þá erum við að leita að þér!

Við hvetjum öll kyn með hreint sakavottorð til þess að sækja um, umsóknarfrestur er til og með 28. júní næstkomandi.

Við hvetjum umsækjendur til að skila inn umsókn sem fyrst þar sem unnið verður úr þeim jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og er öllum umsóknum svarað.

Nánar upplýsingar um starfið veitir Guðjón Birgir Jóhannsson, útibússtjóri á Austurlandi, í síma 580-7000. https://alfred.is/starf/verkefnastjori-a-austurlandi

Secret Link