Verkamaður – Reyðarfjörður

Vegagerðin auglýsir laust starf verkamanns eða vélamanns á þjónustustöðinni á Reyðarfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn dagleg þjónusta á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvar á Reyðarfirði
  • Meðal verka er viðhald á vegstikum, umferðamerkjum og öðrum vegbúnaði ásamt annarri vinnu í starfsstöð

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Almenn ökuréttindi
  • Vinnuvélaréttindi / meirapróf æskilegt
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
  • Gott vald á íslensku
  • Góð öryggisvitund
  • Almenn tölvukunnátta

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL starfsgreinafélag hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar veitir Hinrik Þór Oliversson yfirverkstjóri þjónustustöðvar á Reyðarfirði – 522 1000, hinrik.th.oliversson@vegagerdin.is

Umsóknarfrestur er til og með 11. september 2023 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Vegagerðarinnar: Laus störf hjá Vegagerðinni | Laus störf | Vegagerðin (vegagerdin.is)