Verk -og listgreinakennari
List- og verkgreinakennara vantar til starfa við Seyðisfjarðarskóla til að kenna leiklist, smíði, myndmennt, textílmennt og tónmennt. Auglýst er eftir kennurum í 30 – 100% starf frá og með 1. ágúst 2026. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu nemenda samkvæmt markmiðum aðalnámskrár grunnskóla í samráði við skólastjóra og aðra kennara með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Fylgjast með velferð nemenda, hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar.
- Taka þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennsluréttindi.
- Góð samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Skipulagshæfni