Verk- eða tæknifræðingur í áreiðanleikateymi
Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum verk- eða tæknifræðingi í starf áreiðanleikasérfræðings. Álver Alcoa Fjarðaáls ermeðal þeirra fullkomnustu í heiminum og mikið er um sjálfvirkan búnað í stöðugri notkun. Áreiðanleikasérfræðingur vinnur að því að tryggja áreiðanleika búnaðarins með sérhæfðu ástandsgreiningarteymi sem styðst við margvíslegar mælingar og samanburð gagna.
Alcoa Fjarðaál er í samstarfi við leiðandi viðhaldsfyrirtæki í þróun sjálfvirkrar vöktunar vélbúnaðar í viðhaldskerfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greina mikilvægi búnaðar
- Þróa mælikvarða fyrir áreiðanleika
- Tryggja réttar upplýsingar um búnað
- Rótargreiningar biliana og vandamála
- Reikna út kostnað og ávinning
- Stýra áreiðanleikaverkefnum
- Áætlanir og verklýsingar viðhaldsverka
- Greina viðhaldsgögn og vinna að umbótum
- Halda utan um varahlutalager
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf í verk- eða tæknifræði
- Þriggja ára hagnýt starfsreynsla
- Geta til að skipuleggja og leiða verkefni
- Færni í samskiptum og teymisvinnu
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Vilji til að læra og þróast í starfi
- Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Rútuferðir frá helstu byggðarkjörnum
- Mötuneyti
- Íþrótta og meðferðastyrkir
Frekari upplýsingar um starfið veitir Gísli Gylfason á [email protected] eða í síma 470 7700. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr. 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.
Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is
Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 19. júní.