Vélvirki – Fjarðabyggð

Launafl óskar eftir að ráða vélvirkja, vélfræðing eða vélstjóra í fullt starf á vélaverkstæði fyrirtækisins.

Góð laun eru í boði á lifandi vinnustað og tækifæri til starfsþróunar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn vélvirkjastörf
  • Samskipti við viðskiptavini
  • Tölvuvinnsla og önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Sveinspróf á sviði vélvirkjunar eða skyldum fagsviðum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Almenn tölvukunnátta
  • Ökuréttindi
  • Íslenskukunnátta

Umsóknir ásamt ferilskrám skulu sendar á netfangið [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað.

Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri Launafls, Adda í síma 840-7212 eða framkvæmdarstjóri, Magnús í síma 840-7211.

Umsóknir verða höndlaðar sem trúnaðarmál.

 

Launafl er iðnfyrirtæki í Fjarðabyggð með fjölbreytta starfsemi í flestum greinum sem lúta að iðnaði. Í fyrirtækinu er skemmtilegur starfsandi og öflugt starfsmannafélag.

Secret Link