Vélaverkstæði Austursvæði

Starf verkstæðisformanns á vélaverkstæðinu er laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og starfstöðin er á Reyðarfirði

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hefur yfirumsjón með vélaverkstæði
  • Viðhald og lagfæringar á vinnuvélum og snjómokstursbúnaði Vegagerðarinnar
  • Viðhald og lagfæringar á vegbúnaði, m.a. veðurstöðvum og myndavélum
  • Ýmis vinna í starfsstöð

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bifvélavirki/vélvirki
  • Meistararéttindi æskileg
  • Starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Stjórnunarreynsla er æskileg
  • Æskilegt að umsækjandi hafi vinnuvélaréttindi og meirapróf
  • Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð öryggisvitund

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður.

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum heimasíðu vegagerðarinnar www.vegagerdin.is.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%.

Nánari upplýsingar veitir Davíð Þór Eyrbekk Sigfússon, deildarstjóri þjónustudeildar – [email protected] – 522 1945

Secret Link