Útibússtjóri á Eskifirði
Við leitum af öflugum stjórnanda til að leiða útibú okkar á Eskifirði. Í boði er spennandi og fjölbreytt starf með samheldnum hópi starfsfólks.
MENNTUN OG HÆFNISKRÖFUR:
· Reynsla á sviði stjórnunar
· Góð þekking og reynsla af þjónustu á Austurlandi
· Skipulögð vinnubrögð, rík þjónustulund og leiðtogahæfileikar
· Háskólamenntun og/eða iðnmenntun sem nýtist í starfi
STARFIÐ FELUR Í SÉR
· Umsjón og ábyrgð á rekstri útibúsins
· Ráðgjöf vegna öryggismála og sölu búnaðar
· Viðhald og uppbygging tengsla á svæðinu
· Ábyrgð á þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki
Umsóknafrestur er til og með 29.janúar nk. og sótt er um starfið á heimasíðu Securitas www.securitas.is. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected]., umsækjendur þurfa að hafa hreint sakavottorð
Securitas er stærsta fyrirtæki landsins á öryggismarkaði og þar starfa um 500 starfsmenn. Hjá okkur starfar metnaðarfullt starfsfólk sem leggur áherslu á að veita frábæra þjónustu. Securitas rekur útibú og starfsstöðvar víða um land en höfuðstöðvar eru í Skeifunni 8 í Reykjavík