
Umsjónarmaður urðunarstaðar
Framkvæmda- og skipulagssvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf umsjónarmanns urðunarstaðar sveitarfélagsins. Starfið felur í sér að hafa umsjón og ábyrgð á rekstri urðunarstaðar sveitarfélagsins á Þernunesi við Reyðarfjörð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og eftirlit verkefna á urðunarstað og urðun sorps í sveitarfélaginu frá stofnunum og fyrirtækjum.
- Vinnur á urðunstaðnum og öðrum starfsstöðvum miðstöðvar.
- Samstarf við íbúa, stofnanir og fyrirtæki.
- Önnur verkefni sem snúa að urðun á úrgangi í sveitarfélaginu.
- Sinnir öðrum tilfallandi störfum sem falla undir starfsemi þjónustu- og framkvæmdamiðstöð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, iðnmenntun er kostur.
- Vinnuvélaréttindi æskileg – Meirapróf er kostur.
- Þekking og reynsla af sambærilegum störfum kostur.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og skipulagshæfni.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli.
Fríðindi í starfi
- Vinnutímastytting
- Íþrótta- og tómstundarstyrkur