Umsjónarmaður fjarvarmaveitu á Seyðisfirði
Umsjón og daglegur rekstur fjarvarmaveitu HEF á Seyðisfirði sem og dreifikerfi vatns- og fráveitu í bænum. Einnig þátttaka í öðrum verkefnum tengdum starfsemi okkar í Múlaþingi öllu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur og vöktun fjarvarmaveitu á Seyðisfirði.
- Viðhald og eftirlit með dreifikerfi, dælu- og hreinsistöðvum í bænum.
- Aðkoma að nýlögnum, endurnýjunum, viðhaldi og rekstri allra veitukerfa fyrirtækisins í Múlaþingi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðn- og/eða tæknimenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla og þekking á vinnu við rafmagn og pípulagnir æskileg.
- Tölvukunnátta; samskiptaforrit, Office og vöktunar- og stjórnkerfi vélbúnaðar
- Ökuréttindi
Fríðindi í starfi
- Samstarf og samvinna í frábærum starfsmannahópi
- Heilsuræktarstyrkur