Umsjónaraðili frístundar

Fellaskóli auglýsir eftir umsjónaraðila frístundar, sem er lengd viðvera fyrir nemendur í 1. – 4. bekk. Starfið er 50% hlutastarf en möguleiki á hærra starfshlutfalli í öðrum verkefnum. Ráðið er í starfið frá 1. september 2025.

Umsjónaraðili frístundar skipuleggur starf frístundar í samráði við skólastjóra og forstöðumann frístundar í Múlaþingi, og sér til þess að framfylgja því skipulagi. Meðal verkefna frístundar eru félagslegur stuðningur og þjálfun nemenda. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, lausnamiðaða hugsun og frumkvæði í daglegum verkefnum.

Næsti yfirmaður er skólastjóri. Vinnuaðstaða umsjónaraðila frístundar er í Fellaskóla og í Sólinni, frístundaheimili.

Vinnutími er alla jafna frá kl. 12.25 – 16.00 alla virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Halda utan um skráningar nemenda í frístund.
  • Skipuleggja starf frístundar og sjá til þess að því sé fylgt eftir.
  • Tryggja að nemendur komist í skipulagðar tómstundir á meðan dvalartíma stendur s.s. í tónlistarnám og/eða íþróttir.
  • Gefa nemendum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
  • Gæta fyllsta öryggis með nemendur og forðast þær aðstæður sem geta reynst hættulegar.
  • Samskipti við foreldra/forsjáraðila og starfsfólk grunnskóla er varða starfsemi frístundar.
  • Annast innkaup á leikföngum og öðrum munum í frístundastarf.
  • Önnur verkefni í samráði við skólastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um stúdentspróf.
  • Menntun á sviði uppeldis og/eða tómstundarfræða eða önnur menntun sem nýtist í starfi mikill kostur.
  • Reynsla og þekking sem nýtist í starfi.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi.
  • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Lausnamiðun og geta brugðist hratt og vel við óvæntum atburðum sem upp koma.
  • Mjög góð íslenskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.
Secret Link