Umsjón með Lindarbakka á Borgarfirði eystra

Óskað er eftir aðila til að hafa umsjón með Lindarbakka á Borgarfirði eystra í sumar. Viðkomandi sinnir minniháttar viðhaldi í samráði við bæjarverkstjóra, og annast leiðsögn og móttöku gesta.

Um er að ræða 50% starfshlutfall, og er starfstími er frá 15. júlí – 30. ágúst.

Næsti yfirmaður er atvinnu-og menningarmálastjóri.

Lindarbakki er vinsæll viðkomustaður ferðamanna og og eitt helsta kennileiti fjarðarins. Takmarka þarf aðgang og stýra fjölda gesta hverju sinni.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni er að taka á móti ferðamönnum, rukka aðgangseyrir og að sinna þrifum og tiltekt í og við húsið daglega. Samstarf er við áhaldahús bæjarins með slátt og annað er varðar viðhald og minniháttar viðgerðir.

Secret Link