Umsjón með húsnæði og þrifum
Námsverið og Austurbrú leita að starfsmanni til að hafa umsjón með húsnæði og þrifum á Búðareyri 1 (Fróðleiksmolanum) á Reyðarfirði
Starfið felur í sér:
- Umsjón með húseign og búnaði
- Daglegt eftirlit og þrif
- Bókanir á fundarsölum í námsverinu
- Umsjón með kaffiveitingum
- Umsjón með minni háttar viðhaldsverkefnum
- Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin
Hæfni:
- Þjónustulund og jákvætt viðmót
- Mjög góð samskipta- og skipulagsfærni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla af áþekkum verkefnum kostur
Um er að ræða fullt starf sem fer að jafnaði fram á dagvinnutíma en vinnutími tekur mið af starfsemi í húsnæðinu og því einnig um að ræða tilfallandi verkefni um kvöld og helgar. Mikilvægt er að starfsmaður geti hafið störf í október 2021.
Nánari upplýsingar
Sverrir hjá Námsveri ([email protected]) og Jóna hjá Austurbrú ([email protected]).
Umsóknir
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2021. Umsókn; kynningarbréf og ferilskrá, skal senda til Jónu ([email protected]).