Tónlistarkennari við Tónlistarskóla Djúpavogs

Djúpavogsskóli auglýsir eftir tónlistarkennara í 100% starf frá og með næsta skólaári. Um framtíðarstarf er að ræða.

Starfið felur í sér meðal annars, skipulag og utanumhald á kennslu nemenda. Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk og þátttöku í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.

Djúpavogsskóli er samrekinn grunn- og tónlistarskóli með um 70 nemendur. Skólinn vinnur í takt við hæglætishugmyndir Cittaslow og leggur mikla áherslu á velferð og vellíðan. Starfsandinn er góður og tækifærin eru mörg fyrir skapandi og jákvæða einstaklinga. Skólinn er í mikilli þróun með áherslu á samþættingu, úti- og grenndarnám, núvitund, sjálfbærni og teymisvinnu. Við leitum að kennurum sem hafa farsæla kennslureynslu og eru tilbúin að taka þátt í þróunarstarfi og starfa eftir stefnu og framtíðarsýn skólans.

Skólastjóri er næsti yfirmaður.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla nemenda í samræmi við meginmarkmið aðalnámskrár og með hliðsjón af þörfum og þroska þeirra í samráði við samkennara og skólastjórnendur.
  • Undirbúningur nemenda fyrir tónleika, tónfundi, sýningar og aðra tónlistarviðburði.
  • Skipulag og utanumhald á kennslu nemenda.
  • Samskipti við forráðamenn og samstarfsfólk.
  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd tónleika og annarra tónlistarviðburða.
  • Stuðla að jákvæðu og hvetjandi skólaumhverfi fyrir alla nemendur.
  • Þátttaka í að þróa faglegt skólastarf.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við starfsfólk skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tónlistarkennaramenntun eða háskólamenntun í tónlist skilyrði.
  • Gott vald á íslenskri tungu og áhugi á að nýta upplýsingatækni í kennslu.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Áhugi á teymiskennslu og samstarfi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
  • Faglegur metnaður og lausnamiðuð hugsun.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Hreint sakavottorð
Secret Link