ÞROSKAÞJÁLFI/ IÐJUÞJÁLFI ÓSKAST VIÐ LYNGHOLT

Leikskólinn Lyngholt auglýsir eftir þroskaþjálfa/Iðjuþjálfa í stuðning með nemanda.
Leikskólinn er sex deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri. Við erum skóli á grænni grein og vinnum eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Um er að ræða 100 % stöður.

Menntun:
• Þroska- /iðjuþjálfa menntun eða hafa lokið grunnnámi fyrir stuðningsfulltrúa eða sambærilega menntun.

Hæfni:
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Hæfni og áhugi á að vinna í hóp
• Reynsla af starfi með börnum
• Ábyrgð og stundvísi
• Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fást einstaklingar með viðkomandi menntun, kemur til greina að ráða starfsfólk með aðra menntun og reynslu.
Umsóknarfrestur er til 27 janúar 2023.

Starfslýsing þroskaþjálfa

Starfslýsing starfsmaður leikskóla með stuðning

Nánari upplýsingar gefur Lísa Lotta Björnsdóttir, [email protected] eða í síma 4741250/8603176 og Gerður Ósk Oddsdóttir, [email protected] eða í síma 4741280

Sótt er um starfið hér