Þjónustufulltrúi á Umhverfis-og framkvæmdasviði
Laust er til umsóknar starf þjónustufulltrúa á Umhverfis-og framkvæmdasviði.
Um fullt starf er að ræða (100%).
Starfsmaður hefur umsjón með umsýslu teikninga, skráningu, skjalavörslu og frágangi erinda og aðstoðar byggingafulltrúa og aðra starfsmenn á sviðinu eftir þörfum. Næsti yfirmaður er framkvæmda-og umhverfismálastjóri Múlaþings
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsýsla með teikningar, skönnun og skráning
- Verkefni tengd umsýslu gagna, skjalavörslu o.fl.
- Undirbúningur og frágangur afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
- Utanumhald mála í One systems og aðstoð við byggingarfulltrúa
- Önnur skrifstofustörf s.s. símsvörun, upplýsingagjöf til íbúa ofl.
- Mikil áhersla lögð á nákvæmni, trúnað, öryggi og vandvirkni í starfi
- Önnur verkefni sem viðkomanda er falið af framkvæmda- og umhverfismálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf, iðnnám eða sambærilegt nám og/eða mikil reynsla á þessu sviði (amk. 3 ár)
- Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
- Þekking og/eða reynsla af skipulags- og byggingarmálum og opinberri stjórnsýslu er kostur
- Þekking og/eða reynsla af skrifstofuvinnu með áherslu á skjalavinnslu er kostur
- Samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
- Góð íslenskukunnátta, þekking á almennum tölvuforritum og almenn leikni í upplýsingatækni
- Góð þjónustulund