TEXTASKRIF OG VINNSLA Á EFNI INN Á VEFINN VISITICELAND.COM
TEXTASKRIF OG VINNSLA Á EFNI INN Á VEFINN VISITICELAND.COM – STÖRF ÁN STAÐSETNINGAR Á LANDSBYGGÐINNI
Ferðamálastofa leitar að einstaklingum til efnisvinnslu og texta- skrifa fyrir vefinn visiticeland.com og miðla tengdum honum.
Ferðamálastofa, Íslandsstofa og atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið hafa með samkomulagi sín á milli ákveðið að vefurinn VisitIceland.com verði helsta upplýsingaveita fyrir ferðamenn á leið til landsins, á meðan dvöl þeirra á landinu stendur og eftir að heim er komið. Er þá m.a. horft til upplýsinga um framboð þjónustu, menningu, sögu, náttúru, fjölbreytileika landsins, aðgengi ferðamannastaða, öryggi og umhverfisvernd, veður og færð á vegum.
Mikilvægt er að í slíkri miðlun upplýsinga sé ítarlegt og vel unnið efni, bæði texti og myndir. Uppfærsla og endurnýjun á efni þarf að vera stöðug til að miðillinn sé lifandi og áreiðanlegur.
Leitað er að einstaklingum með fasta búsetu utan höfuð- borgarsvæðisins en að öðru leyti er um störf án staðsetningar að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti haft starfsaðstöðu utan heimilis. Miðað er við að starfshlutfall sé að lágmarki 50%.
Helstu verkefni og ábyrgð
Textaskrif um land og þjóð í samræmi við ritstjórnarstefnu VisitIceland.com
Uppfærsla upplýsinga og leiðbeininga á VisitIceland.com
Samstarf við áfangastaðastofur, sveitarfélög og fyrirtæki í ferðaþjónustu um gerð efnis fyrir ferðamenn
Þýðing og staðfærsla efnis og texta fyrir stafræna miðlun
Hæfniskröfur
Yfirgripsmikil reynsla af textaskrifum fyrir vef (leitarvélabestun) og þekking á sviði ferðaþjónustu, háskólapróf er kostur.
Mjög góð enskukunnátta og reynsla af skrifum á ensku. Þekking á fleiri tungumálum kostur
Góð þekking á landi og þjóð, menningu og staðháttum og sérstöðu Íslands s.s. veðráttu og öryggi?
Frumkvæði og metnaður í starfi
Rík þjónustulund og jákvæðni
Hæfni í mannlegum samskiptum
Tölvukunnátta og góð þekking á samfélagsmiðlum og vefmiðlun
Nánari upplýsingar
Umsóknum skal skila á netfangið [email protected] fyrir 5. mars nk.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Inga Rós Antoníusdóttir [email protected]