Tæknimaður á rannsóknastofu hjá Alcoa Fjarðaáli

Umhverfis-, heilbrigðis- og öryggisteymi Alcoa Fjarðaáls leitar að tæknimanni á rannsóknastofu. Starfið felur í sér gæða-, heilsu- og umhverfismælingar, umsjón og viðhald mælibúnaðar og almenn störf á rannsóknastofu. Rannsóknastofan sér um fjölbreyttar mælingar, svo sem í kerskála, löndunarbúnaði, vöktunarstöðvum og settjörnum. Þessar mælingar styðja við framleiðslustjórnun, gæðakerfi og umhverfismælingar sem tengjast starfsleyfi Fjarðaáls. Vinnutími er að jafnaði frá kl. 8 til 16 en viðkomandi þarf jafnframt að vinna á bakvöktum.

Ábyrgð og verkefni

  • Reglubundnar mælingar og sýnataka
  • Skráning og yfirferð á niðurstöðum
  • Daglegur undirbúningur sýna og tækja
  • Umsjón og viðhald tækjabúnaðar
  • Almenn störf á rannsóknastofu
  • Viðhald og þróun feral
  • Vinna að umbótum

Menntun, hæfni og reynsla

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af umhverfismælingum og viðkvæmum búnaði er kostur
  • Nákvæmni og vandvirkni í mælingum
  • Sterk öryggisvitund og góð umgengni
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Góð tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið veitir Páll Freysteinsson, framkvæmdastjóri umhverfis-, heilbrigðis og öryggismála, í tölvupósti á netfangið [email protected] eða í síma 843 7766. Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr 150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um starfið á www.alcoa.is.

Umsóknarfrestur er til og með mánudeginum 12. September.

Secret Link