Tæknilausnir, kerfi og skjölun

Við auglýsum starf verkefnastjóra á sviði tæknilausna. Ef þú vilt vinna á faglega krefjandi og skemmtilegum vinnustað með tæknilausnir, kerfi, gögn og skjalastjórn sem meginviðfangsefni, þá er þetta starfið fyrir þig.

Ertu fær í högun og samþættingu tölvukerfa? Gera stafrænt vinnuumhverfi aðgengilegt? Velja kerfi og stýra innleiðingarferli? Draga fram skiljanlegar niðurstöður úr gögnum?

Austurbrú auglýsir eftir sérfræðingi til að leiða verkefni á sviði tölvukerfa, gagna og skjalamála innan stofnuninnar.

Starfið felst í teymisvinnu við rekstur og áframhaldandi uppbyggingu á stafrænu umhverfi stofnunarinnar, og bestun hugbúnaðarflórunnar hverju sinni. Í starfinu felst umsjón og framkvæmd verkefna tengd tæknilausnum og tölvukerfum, upplýsingamiðlun, ráðgjöf, stefnumótun og umsjón gagnamála.

Við leitum að einstaklingi sem býr yfir góðri reynslu af notkun Office365 lausna, er skipulagður og á auðvelt með að skapa yfirsýn yfir þarfir og möguleika varðandi tæknilausnir, gögn og skjöölun. Verkefnastjórinn mun sinna þarfagreiningum, viðhaldi og innleiðingu á hugbúnaði, tæknilegum útfærslum s.s. við gerð mælaborða í PowerBi sem og þróun UT kerfa.

Að auki er mikilvægt að viðkomandi hafi áhuga á að vinna í hóp og eigi auðvelt með að starfa með öðrum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með rekstri tölvukerfa og tæknilausna
  • Ráðgjöf og stuðningur vegna innleiðingar og notkunar Microsoft Office 365 lausna
  • Útfærsla skjalalausna stofnunar
  • Umsjón með gagnaumhverfi stofnunarinnar og gerð greininga í Power BI
  • Stefnumótun og innleiðing verkfæra
  • Samskipti við hagaðila og stofnanir
  • Teymisvinna

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. tölvunarfræði, kerfisfræðimenntun og þekking á gagnagreiningum og högun gagna kerfisfræðimenntun eða gagnagreiningar og tæknifræði
  • Þekking og reynsla af uppsetningu og rekstri Microsoft Windows stýrikerfa, Power BI og notkun Microsoft Office 365 lausna
  • Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa og viðeigandi fyrirbyggjandi aðferðum
  • Reynsla af verkefnastjórnun og þekking á verkefnastjórnunarverkfærum
  • Færni í úrlausn vandamála og greiningarhæfni
  • Þekking á gerð skýrslna og greiningu í Power BI
  • Þekking á högun gagnaumhverfis og gagnagæðum
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði til verka
  • Leiðtogahæfni

Fríðindi í starfi

  • Góður aðbúnaður
  • Stytting vinnuviku
  • Heimavinnudagar
  • Jafnlaunavottun
  • Sveigjanlegt starfsumhverfi

Umsókn skal fylgja

  • Ferilskrá
  • Kynningarbréf
  • Greinargerð um þekkingu og reynslu af umsjón tölvukerfa og tæknilausna
  • Upplýsingar um meðmælendur

Fyrirspurnir og umsóknargögn skal senda til Tinnu Halldórsdóttur yfirverkefnastjóra innri mála [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 17. júní

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Verkefnastjóri getur haft aðsetur á hverri af starfsstöðvum Austurbrúar en búseta á Austurlandi er skilyrði. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Fræðagarðs.

Austurbrú er þverfaglegur og krefjandi vinnustaður sem er leiðandi í stoðþjónustu á Austurlandi hvað varðar atvinnulíf, menntun, byggðaþróun og menningu. Starfsstöðvarnar bjóða góða aðstöðu og aðbúnað. Austurbrú hefur hlotið jafnlaunavottun og er EQM vottuð stofnun á sviði fræðslumála.

Secret Link