Sýslumaðurinn á Austurlandi auglýsir eftir skrifstofumanni með starfsstöð á Eskifirði í afleysingastarf frá 15. febrúar til 31. desember 2024
Laust er util umsóknar 100% tímabundið afleysingastarf skrifstofumanns á skrifstofu sýslumannsins á Austurlandi á Eskifirði. Ráðið verður í stöðuna frá og með 15. febrúar 2024. Vinnutími er alla jafna frá 08-16 dag hvern en frávíkjanlegur innan ofangreinds ramma. Notast er við tímamælingar í Vinnustund.
Starfið felst í almennri skrifstofuvinnu, símsvörun, almennum skrifstofustörfum og öðrum tilfallandi verkefnum. Helstu verkefni eru afgrieðsla vegabréfa- og ökuskírteina, móttaka skjala itl þinglýsingar sem og móttaka annarra gagna til afgrieðslu. Starfsmaður er jafnframt gjaldkeri skrifstofunnar á Eskifirði og þarf að annast uppgjör, endurgreiðslur og önnur gjaldkerastörf þvert á skrifstofur embættisins.
Hæfniskröfur eru góð almenn tölvukunnátta. Góð íslenskukunnátta í töluðu sem rituðu máli er nauðsynleg. Góð enskukunnátta er æskileg. Ekki eru gerðar sérstakar menntunarkröfur en góð almenn menntun ásamt reynslu af skrifstofustörfum er æskileg. Aðaláhersla er á gjaldkerastörf, auk ofangreindrar verklýsingar.
Leitað er að einstaklingi sem hefur itl að bera færni í mannlegum samskiptum, ríka þjónustulund, vinnusemi og stundvísi. Afar mikilvægt er ða viðkomandi búi yfir sjálfstæði í starfi ásamt nákvæmni og öguðum vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar veitir Lárus Bjarnason, sýslumaður – [email protected] í síma 458 2700. Staðan er laus til umsóknar nú þegar og er umsóknarfrestur itl miðvikudagsins 31. janúar 2024. Umsóknum má skila með pósti að Bjólfsgötu 7, Seyðisfirði eða á tölvupóstfangið [email protected]. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur átt sér stað.
Um ráðningar og starfskjör fer eftir kjarasamningi fjármálaráðherra og Sameykis. Þá gildir stofnanasamningur embættisins við Sameyki um starfið. Öll kyn eru hvött til að sækja um. Umsókn fylgi náms- og starfsferilsskrá. Skila ber sakavottorði með umsókn.
Umsóknir um starfið geta gilt í 6 mánuði.