Fjarðabyggð óskar eftir að ráða öflugan og framsýnan leiðtoga í starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs sveitarfélagsins. Framkvæmda- og umhverfissvið er ný sameinað svið sem hefur með höndum veigamikla þætti í rekstri Fjarðabyggðar m.a. yfirstjórn umhverfismála, skipulags- og byggingarmála, veitna, gatna, eigna- og tækjasjóðs, þjónustu- og framkvæmdamiðstöðva auk framkvæmda og starsmannahalds á Fjarðabyggðahöfnum.
SVIÐSSTJÓRI FRAMKVÆMDA- OG UMHVERFISSVIÐS FJARÐABYGGÐAR
Sviðsstjóri hefur með höndum stefnumótun í þeim málaflokkum sem heyra undir sviðið, stýrir rekstri þeirra með áherslu á faglega forystu í framkvæmda og umhverfismálum á víðum grunni. Sviðsstjóri er starfsmönnum á sviðinu til ráðgjafar og stuðnings í verkefnum og ákvörðunum sem þeir fást við og mótar og leiðir starfsemi sviðsins og framtíðarsýn í samræmi við áherslur sveitarfélagsins. Hann starfar náið með bæjarstjóra og öðrum sviðsstjórum.
Helstu verkefni:
- Yfirstjórn þeirra málaflokka sem falla undir starfið.
- Ábyrgð á þróun öflugs stjórnendateymis innan sviðsins.
- Ábyrgð á gæðum þjónustu sviðsins og þjónustustöðlum.
- Að auka samstarf og samþættingu starfsemi sviðsins þvert á málaflokka sveitarfélagsins.
- Ábyrgð á útboðum framkvæmda allra sviða sveitarfélagsins þ.m.t. hafna.
- Ábyrgð á áætlanagerð málaflokka sem heyra undir svið þ.m.t. hafna.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, verk- bygginga- eða tæknifræði er áskilin.
- Reynsla af rekstri, stjórnun og stefnumótun er áskilin.
- Reynsla og þekking á málefnum sveitarfélaga er æskileg.
- Þekking á stefnumótandi áætlanagerð og gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.
- Forystu-, skipulags- og samskiptahæfileikar.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Geta til að taka þátt í og stjórna breytingum.
- Góð málakunnátta (íslenska og enska) og hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti.
Starfslýsing: Sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs
Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri í síma 470-9000 eða á netfanginu [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2023
Sótt er um starfið inná starfasíðu Fjarðabyggðar