SUMARSTÖRF VIÐ SÖFNIN Í FJARÐABYGGÐ
Safnastofnun Fjarðabyggðar auglýsir eftir sumarstarfsmönnum sumarið 2022 til að vinna við minjasöfn. Leitað er að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa frumkvæði, geta unnið sjálfstætt og eiga auðvelt með samskipti við fólk.
Störfin eru fjölþætt og verða skipulögð eftir álagi á söfnum og í samstarfi við félög eldri borgara sem jafnframt sinna yfirsetu safnanna.
Söfnin sem um ræðir eru:
- Frakkar á Íslandsmiðum, Fáskrúðsfirði
- Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði
- Sjóminjasafn Austurlands, Eskifirði
- Safnahúsið í Neskaupstað
Helstu verkefni:
- Safnastörf sem fela í sér almenn safnastörf, dagleg þrif, forvörslu, skráningu muna og viðhald sýninga.
- Móttaka gesta og viðskiptavina.
- Leiðsögn um söfn og kynning þeirra til gesta.
- Annast innkaup og umsjón rekstrarvara og minniháttar búnaðar.
- Aðstoð við skipulagningu dagskrár starfseminnar.
Hæfniskröfur:
- Framhaldsskólamenntun sem hafin er eða lokið.
- Reynsla af þjónustustörfum.
- Reynsla af safnastörfum er kostur.
- Góð íslenskukunnátta og íslensk ritfærni.
- Önnur tungumálakunnátta er mikilvæg.
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulipurð.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði.
Starfslýsing sumarstarf 2022 – Söfnin í Fjarðabyggð.pdf
Umsóknarfrestur er til og með 8. maí nk. Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga. Öll kyn eru hvött til að sækja um störfin.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Sörensson, forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar. Einnig er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið [email protected]
Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar – starf.fjardabyggd.is með því að smella hér.