Sumarstörf við landvörslu

Upplifðu Vatnajökulsþjóðgarð á einstakan hátt.

Í vatnajökulsþjóðgarði starfar fjölbreyttur hópur af fólki um allt land. Landvarsla er mikilvægur hlekkur í starfi þjóðgarðsins og sinna landverðir eftirliti innan hans og á friðlýstum svæðum. Störf landvarða eru fjölbreytt og felast meðal annars í daglegur eftirliti innan þjóðgarðsins og á friðlýstum svæðum. Verkefnin eru með ólíkum áherslum eftir starfsstöðvum en eiga það sameiginlegt að vera skemmtileg og lífleg.

Helstu verkefni og ábyrgð

Landvarsla á láglendi

Á láglendi er eitt helsta starf landvarða að vera í samskiptum við gesti þjóðgarðsins í formi skipulagðrar fræðslu og miðlun upplýsinga. Fræðsludagskrá Vatnajökulsþjóðgarðs fer í loftið yfir sumartímann og sinna landverðir fræðslugögnum og barnastundum á flestum landvörslustöðvum þjóðgarðsins. Ásamt því þurfa landverðir að sinna eftirliti, vöktun náttúrufars, almenum afgreiðslustörfum í gestastfum, léttu viðhaldi, ræstingum og öðrum tilfallandi verkefnum svo sem afleysingu á öðrum starfsstöðum á láglendi.

Starfstöðvar á láglendi eru:

  • Jökulsárgljúfur
  • Snæfellsstofa á Skriðuklaustri í Fljótsdal
  • Skaftafell
  • Breiðamerkursandur (Jökulsárlón)
  • Skaftárstofa á kirkjubæjarklaustri
  • Gestastofa í Mývatnssveit

Landvarsla á hálendi

Líkt og á láglendi er eitt helsta verkefni landvarða á hálendi samskipti ivð gesti þjóðgarðsins. Fræðsludagskrá Vatnajökulsþjóðgarðs fer í loftið yfir sumartímann og sinna landverðir fræðslugögnum og barnastundum á flestum landvörslustöðvum þjóðgarðsins ásamt vöktun náttúrufars. Ásamt því þurfa landverðir að sinna eftirliti og vöktun náttúrufars, skálavörslu (eftir aðstæðum), ræstingum, liðsinna sjálfboðaliðum, vinna að smærri framkvæmdum og að öðrum tilfallandi verkefnum.

Starfsstöðvar á hálendi eru:

  • Askja (Herðubreiðalindir, Drekagil, Holuhraun, Ódáðahraun)
  • Krepputunga, Kverkfjöll, Hvannalindir og Snæfell
  • Lónsöræfi
  • Lakagígar, Eldgjá/Langisjór, Hrauneyjar/Tungnaöræfi og Nýidalur

Hæfniskröfur

  • Góð samskiptahæfni og færni í miðlun upplýsinga
  • Þjónustulund, sveigjanleiki og lausnamiðuð hugsun
  • Umhverfisvitund, verkkunnatta og stundvísi
  • Skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi
  • Reynsla af náttúrutúlkun, landvarðaréttindi eru æskileg
  • Gott vald á íslensku og ensku, frekari tungumálakunnátta er kostur
  • Ökuréttindi
  • Fyrstu hjálpar réttindi eru kostur
  • Starfsreynsla á friðlýstum svæðum eða önnur reynsla sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af útivist og fjallamennsku er kostur
  • Á Breiðamerkursandi og í Kverkfjöllum er menntun eða reynsla af ferður á skriðjökla kostur
  • Á hálendisstöðvum er starf með björgunarsveitum sem og reynsla af akstri breyttra jeppa kostur.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og ivðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Í rafrænu umsókninni, undir liðnum „annað sem þú vilt að komi fram“ þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar:

  1. Séróskir um starfsstöð, ef einhverjar eru
  2. Réttindi og hæfni sem varða:
    1. Landvarðaréttindi (hvaða ár og hvaðan)
    2. Skyndihjálparréttindi (hvaða ár og hvaðan)
    3. Tungumálakunnátta
    4. Ökuréttindi
    5. Önnur reynsla sem umsækjandi telur að gagnist honum í starfi
  3. Hversu lengi umsækjandi gefur kost á sér til starfsins (lokadagsetning)
  4. Annað sem viðkomandi vill koma á framfæri

Umsækjendur eru hvattir til að hengja ferilskrá við rafrænu umsóknina.

Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2023

Nánari upplýsingar veitir

Ragnheiður Björgvinsdóttir – [email protected] – 575 8400

Smelltu hér til að sækja um starfið

Secret Link