
Sumarstörf námsmanna sumarið 2021
Múlaþing óskar eftir námsfólki í ýmis fjölbreytt og spennandi sumarstörf vegna átaks ríkisstjórnar Íslands um að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar. Vinnumálastofnun mun stýra átakinu sem efnt er til í samvinnu við stofnanir ríkisins, félagasamtök og sveitarfélög.
Um er að ræða störf fyrir námsmenn, 18 ára og eldri, og fela í sér tækifæri fyrir námsmenn til að öðlast starfsreynslu á sínu fagsviði, t.d. fyrir nema í tölvunarfræði, lögfræði, hönnun, verkfræði, tæknifræði, byggingafræði, félagsfræði, viðskiptafræði, ferðamálafræði, tómstunda- og félagsmálfræði, sagnfræði og mannauðsstjórnun.
Ráðningartími er að hámarki 2,5 mánuðir, miðað við tímabilið 15. maí – 15. september.
Störf í boði sumarið 2021:
- Starf á umhverfis- og framkvæmdasviði
- Aðgengisfulltrúi í samstarfi við Öryrkjabandalag Íslands – áhersla á byggingar og útisvæði
- Starf með fötluðu fólki – áhersla á virkni og tómstundastarf
- Störf við umhverfisverkefni
- Starf í safnahúsi á Egilsstöðum
- Starf við skjalavinnslu á fjölskyldusviði
- Aðstoðarmaður verkefnastjóra mannauðs
- Starf á stjórnsýslusviði – áhersla á upplýsingatækni
- Starf á atvinnu- og menningarmálasviði
- Starf á íþrótta- og æskulýðssviði
- Starf á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
- 18 ára og eldri.
- Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Góð íslenskukunnátta og þekking á helstu tölvuforritum.
- Menntun og reynsla sem nýtist í tilteknu starfi.