SUMARSTÖRF – FLOKKSTJÓRAR Í VINNUSKÓLA
Vilt þú taka þátt í að móta framtíðina?
Vinnuskóli Fjarðabyggðar auglýsir sumarstörf flokkstjóra laus til umsóknar. Í störfunum felst skipulagning og stýring á vinnuhópum unglinga fæddum 2008 og 2009 við ýmis umhverfisstörf, Flokkstjórar þurfa að vera hvetjandi, stundvísir, samviskusamir og góðar fyrirmyndir. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 18 ára aldri, hafi hreint sakavottorð, bílpróf ásamt því að búa yfir skilpulags- og leiðtogahæfileikum. Umsóknarfrestur er til og með 11. mars n.k.
Frekari upplýsingar veitir Helga Björk Einarsdóttir garðyrkjustjóri, [email protected]
Sótt er um starfið inná ráðningarvef Fjarðabyggðar