Sumarstörf á Fellavelli og Vilhjálmsvelli

Auglýst er eftir starfsfólki til að sinna umhirðu og tilfallandi verkefnum á Vilhjálmsvelli og Fellavelli
og vallarhúsum sumarið 2020.
Skilyrði er að umsækjendur séu fæddir árið 2002 eða fyrr. Æskilegt er að umsækjendur hafi bílpróf.
Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um reynslu og fyrri störf ásamt meðmælendum.
Umsóknum skal skila á eyðublaði, sem merkt er „Umsókn um sumarvinnu á íþróttavöllum 2020“ og
er á heimasíðu sveitarfélagsins.
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2020.
Nánari upplýsingar veitir vallastjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 899 1948.