Sumarstörf 2022
Spennandi sumarstörf
Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í álverinu við Reyðarfjörð.
Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum í kerskála, skautsmiðju og steypuskála Fjarðaáls.
Sumarstarfsmenn þurfa að geta unnið samfellt í að minnsta kosti tvo og hálfan mánuð. Möguleiki er á áframhaldandi starfi.
Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.
Almennar hæfniskröfur
- Sterk öryggisvitund og árvekni
- Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni
- Heiðarleiki og stundvísi
- Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Frekari upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í síma 470 7700 eða á [email protected]. Hægt er að sækja um sumarstarf hjá Fjarðaáli á www.alcoa.is.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður þeim öllum svarað.
Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 1. mars
Fríðindi í starfi:
- Vinnufatnaður
- Rútuferðir
- Hádegismatur