Sumarstarfsmaður í sláttugengi

Sveitarfélagið Múlaþing aulýsir eftir starfsmönnum í sláttugengi sumarið 2022 á starfstöðvar sveitarfélagsins á Egilsstöðum/Fellabæ og Seyðisfirði.

Um er að ræða störf frá 23. maí til 19. ágúst.

Sláttugengi sveitarfélagsins sjá um orfaslátt m.a. á opnum svæðum sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Orfa- og vélsláttur á opnum svæðum sveitarfélagsins
  • Orfa- og vélsláttur á skóla- og leikskólalóðum sveitarfélagins
  • Orfa- og vélsláttur á öðrum svæðum sem sveitarfélagið sinnir

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Færni til og áhugi á að slá með sláttuorfi
  • Áhugi á að halda sveitarfélaginu snyrtilegu
  • Frumkvæði og sjálfstæði
  • Skipulögð og öguð vinnubrögð
  • Metnaður og dugnaður
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Jákvætt viðmót
  • Samstarfshæfni

Umsækjendur þurfa að vera fæddir árið 2005 eða fyrr.

Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags

Nánari upplýsingar um störfin veitir Freyr Ævarsson, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected].

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagins www.mulathing.is   

Sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Sumarstarfsmaður í sláttugengi | Umhverfis-og framkvæmdasvið | Sumarstarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)

Secret Link