Sumarstarf við símsvörun og afgreiðslu
Óskað er eftir starfskrafti sem sér um símsvörun á skrifstofu Múlaþings á Egilsstöðum og tekur á móti erindum og gestum.
Um er að ræða 100% sumarafleysingarstarf frá 1. júní – 11. ágúst 2023.
Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri Múlaþings.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun fyrir skrifstofu sveitarfélagsins á opnunar´tima
- Hafa yfirsýn yfir viðtalstíma og viðveru annars starfsfólks og taka niður skilaboð og koma á réttan stað
- Taka á móti gestum að Lyngási 12 á opnunartíma, veita almennar upplýsingar og beina þeim til réttra aðila eftir eðli erindis þeirra
- Mikil áhersla lögð á nákvæmni, trúnað, öryggi og vandvirkni í starfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegum störfum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
- Reynsla af störfum hjá stjórnsýslu sveitarfélags kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta í máli og riti
- Góð þjónuseutlund og öguð vinnubrögð
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Óðinn Gunnar Óðinsson í síma 470 0700 eða á netfanginu [email protected]
Fólk af öllum kynjum eru hvött til að sækja um.
Vinnustaðir Múlaþings eru reyklausir og fjölskylduvænir.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. mars 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Sumarstarf við símsvörun og afgreiðslu | Stjórnsýslu-og fjármálasvið (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.