Sumarstarf við símsvörun og afgreiðslu

Óskað er eftir starfskrafti sem sér um símsvörun á skrifstofu Múlaþings á Egilsstöðum og tekur á móti erindum og gestum.

Um er að ræða 100% sumarafleysingarstarf frá 1. júní – 16. ágúst 2024.

Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri Múlaþings.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Símsvörun fyrir skrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma.
  • Hafa yfirsýn yfir viðtalstíma og viðveru annars starfsfólks og taka niður skilaboð og koma á réttan stað.
  • Taka á móti gestum að Lyngási 12 á opnunartíma, veita almennar upplýsingar og beina þeim til réttra aðila eftir eðli erindis þeirra.
  • Mikil áhersla lögð á nákvæmni, trúnað, öryggi og vandvirkni í starfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf og/eða reynsla af sambærilegum störfum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Samskipta- og skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
  • Reynsla af störfum hjá stjórnsýslu sveitarfélags kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í máli og riti
  • Góð þjónustulund og öguð vinnubrögð