Sumarstarf tollvarðar á Austurlandi

Skatturinn leitar að áhugasömum, jákvæðum og drífandi einstaklingi til að sinna spennandi sumarstarfi tollvarðar á Austurlandi á tímabilinu frá 1. júní – 31. Ágúst 2023. Um fjölbreytt starf er að ræða sem hentar öllum kynjum. Starfsstöðvar á Austurlandi eru á Egilsstöðum, Eskifirði og á Seyðisfirði. Um dagvinnu er að ræða.

Verkefnin snúa m.a. að eftirliti með inn- og útflutningi á vörum sem og eftirliti með ferðum og flutningi fara og fólks til og frá landinu auk þess sem viðhaft er eftirlit með flutningi og geymslu á ótollafgreiddum varningi innanlands.

Hæfni og eiginleikar

  • Stúdentspróf
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Fáguð framkoma, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Gott andlegt og líkamlegt atgervi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð
  • Almenn ökuréttindi

Umsækjendur um störf tollvarða þurfa auk ofangreinds að hafa náð 20 ára aldri sem og að geta framvísað hreinu sakavottorði.

Sótt er um starfið á www.skatturinn.is eða www.starfatorg.is og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.

Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Tollvarðarfélags Íslands.

Umsóknarfrestur er til og með 27. febrúar 2023.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Gunnarsdóttir, í síma 442 1000 eða í gegnum tölvupóst á netfangið [email protected].

Gildi skattsins eru fagmennska – framsækni – samvinna.

Secret Link