Sumarstarf í Arion banka

Við leitum að metnaðarfullu og jákvæðu fólki til að starfa með okkur í útibúum okkar á landsbyggðinni í sumar. Við viljum fá til liðs við okkur öfluga einstaklinga sem hafa áhuga á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi.

Hæfni og eignleikar:

  • Framúrskarandi þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar
  • Reynsla af þjónustustörfum er æskileg
  • Góð tölvukunnátta
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Stúdentspróf

Æskilegt er að sumarstarfsfólk geti unnið frá maí/júní og út ágúst. Óskað er eftir að ferilskrá og einkunnir fylgi umsókn. Öllum umsóknum skal skilað í gegnum vefsíðuna okkar.

Umsóknarfrestur er til og með 29. febrúar 2024. Unnið er úr umsóknum jafnóðum svo við hvetjum áhugasöm til að sækja um sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað.