Sumarstarf hjá Arion banka Egilsstöðum
Arion banki leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa í útibúi okkar á Egilsstöðum sumarið 2020. Við viljum fá til liðs við okkur öflugan einstakling sem hefur áhuga á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi hjá framsæknu fjármálafyrirtæki.
Hæfni og eiginleikar:
- Framúrskarandi þjónustulund og góðir samskiptahæfileikar.
- Reynsla af þjónustustörfum er æskileg.
- Góð tölvukunnátta.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Stúdentspróf er æskilegt.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Örn Sverrisson útibússtjóri í síma 470-1805, netfang: [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 18.maí 2020
Sótt er um starfið á vef Arion banka: www.arionbanki.is/starf
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Jafn réttur kvenna og karla til starfa er okkur hjartans mál. Arion banki er jafnlaunavottaður en það felur í sér formlega staðfestingu á því að fagleg vinnubrögð séu til staðar við ákvörðun launa og að starfsfólki í jafnverðmætum störfum sé ekki mismunað. Við hvetjum konur jafnt sem karla til þess að sækja um auglýst störf hjá okkur.