Sumarstarf á fjármálasviði Fjarðabyggðar

SUMARSTARF Á FJÁRMÁLASVIÐI

Sumarstarf á fjármálasviði Fjarðabyggðar

Fjarðabyggð leitar er að metnaðarfullum einstakling með ríka þjónustulund í sumarstarf á fjármálasviði.

Helstu verkefni:

  • Forskráning og innlestur reikninga í uppáskriftarkerfi.
  • Afstemmingar og yfirferð bókhaldsgagna.
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla og/eða þekking á Excel mikilvæg
  • Reynsla og/eða þekking á fjárhagsbókhaldi kostur
  • Góð almenn tölvuþekking
  • Nákvæmni og talnaskilningur
  • Skipulagshæfni og markviss vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfni

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um stöðuna. Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Snorri Styrkársson, fjármálastjóri Fjarðabyggðar, [email protected] eða í síma 470 9000

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar – starf.fjardabyggd.is með því að smella hér

Secret Link