Sumarstarf á fjármálasviði Fjarðabyggðar

Fjarðabyggð leitar að sumarstarfsmanni á fjármálasviði. Leitað er að áhugasömum einstaklingi með metnað fyrir bókhaldi og fjármálum sem mun starfa með öflugum starfsmönnum á fjármálasviði Fjarðabyggðar í sumar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna við fjárhags-, lánadrottna- og viðskiptamannabókhald sveitarfélagsins.
  • Afstemmingar og yfirferð bókhaldsgagna.
  • Greiningar fjárhagsupplýsinga
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla og/eða þekking á Excel mikilvæg
  • Reynsla og/eða þekking á fjárhagsbókhaldi kostur
  • Góð almenn tölvuþekking
  • Nákvæmni og talnaskilningur
  • Skipulagshæfni og markviss vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
Secret Link