Sumarstarf á Egilsstöðum

Við leitum að duglegum, vandvirkum og stundvísum einstaklingi í sumarvinnu á starfsstöð Bílaleigu Akureyrar í Fellabæ. Í starfinu felst afgreiðsla, akstur og ferjanir á bílum, ásamt þrifum á bílaflotanum.

Við leitum að einstaklingi sem er óhræddur við líkamlega vinnu og hefur náð 17 ára aldri. Unnið er frá 08:00-17:00 virka daga og aðra hvora helgi.

Starfskröfur:

  • Rík þjónustulund
  • Gilt ökuskírteini
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi
  • Jákvæðni og áreiðanleiki
  • Hreint sakavottorð
  • Enskukunnátta

Upplýsingar um starfið veitir Ólafur Björnsson, stöðvarstjóri s. 461 6072.

Mikilvægt er að ferilskrá og mynd fylgi umsóknum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiðsla
  • Bílaþrif
  • Ferjanir á bílum

Hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Sumarstarf á Egilsstöðum | Höldur ehf. – Bílaleiga Akureyrar (alfred.is)

Secret Link