Sumarafleysingar lögreglumenn – Lögreglan á Austurlandi

Sumarafleysingar lögreglumenn – Lögreglan á Austurlandi

Lögreglustjórinn á Austurlandi auglýsir eftir lögreglumönnum til afleysinga í sumar
Stöðurnar veitast frá og með  16.05.2020 til og með 15.09.2020.

Umsóknarfrestur er til 1. apríl næstkomandi og skal umsóknum skilað til Lögreglustjórans á Austurlandi, Strandgötu 52, 735 Eskifjörður, eða á netfangið [email protected]

Ráðningarkjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Landssambands lögreglumanna. Starfshlutfall er 100%. Starfið er vaktavinna sem og eru bakvaktir.
Umsækjendur þurfa að uppfylla almenn skilyrði til að gegna lögreglustarfi skv. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir a.m.k 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi. Heimild er þó til að ráða ófagmenntað fólk til tímabundinna afleysingastarfa ef ekki sækja um fagmenntaðir einstaklingar. Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er kostur. Færni í mannlegum samskiptum, góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og hæfni til að starfa í hóp eru nauðsynlegir eiginleikar. Góð staðarþekking er kostur. Æskilegt er að umsækjendur hafi gott vald á íslensku og góða almenna tölvukunnáttu.

Umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi er víðfemt og með sex starfsstöðvar; á Egilsstöðum, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, í Neskaupstað, á Djúpavogi og Vopnafirði. Rannsóknardeild er á Fáskrúðsfirði sem sinnir öllu starfssvæðinu. Þar eru stærri brot og umfangsmeiri rannsökuð. Önnur mál eru að jafnaði til rannsóknar í almennri deild.
Verkefni lögreglu eru fjölbreytt á svo stóru starfssvæði með hálendiseftirliti meðal annars og virku eftirliti í tengslum við ferðir Norrænu sem siglir vikulega allt árið til hafnar á Seyðisfirði.

Sérstaða embættisins er dreifð byggðin með tólf byggðakjörnum allt frá Djúpavogi í suðri til Vopnafjarðar í norðri. Stærstur byggðakjarna er Egilsstaðir.

Á svæðinu er gott mannlíf og fjölskylduvænt umhverfi þar sem eru miklir möguleikar til útivistar og fjölbreyttrar tómstunda- og íþróttaiðkunar fyrir bæði börn og fullorðna. Fjölskrúðugt menningarlíf og stórbrotin náttúra þar sem eru heimkynni hreindýra. Landslagið er fjölbreytt og stutt á Vatnajökul og hálendið.”

Nánari upplýsingar um stöðurnar gefur Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn í síma 444-0635.

Umsóknir, sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Lögreglustjórinn á Austurlandi setur í stöðurnar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningar liggur fyrir. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Umsækjendur um sumarstarf sem þegar hafa sent inn umsókn þurfa ekki að gera það að nýju.
Lögreglustjórinn á Austurlandi hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um auglýstar stöður.

Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum. Einnig er hægt að nálgast þau á lögregluvefnum, www.logreglan.is undir liðnum eyðublöð.

Eskifirði, 16. mars 2020
Lögreglustjórinn á Austurlandi