Sumarafleysingar í stuðningsþjónustu við fatlað fólk – Fljótsdalshérað

Laus störf hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs
Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs óskar eftir að ráða starfsfólk í eftirfarandi störf:
Stuðningsþjónustu við fatlað fólk á eigin heimilum. Um er að ræða hlutastörf í vaktavinnu,
u.þ.b. 57% og 20% stöður með möguleika á auknu starfshlutfalli og 75% afleysingarstöðu í 3
mánuði með möguleika á áframhaldandi starfi. Stuðningsþjónusta er aðstoð til fatlaðs fólks við
athafnir daglegs lífs s.s. heimilisstörf, persónulega aðstoð, félagslega þátttöku og tómstundir.
Leitað er að fólki með almenna kunnáttu í heimilisstörfum og umönnun.
Liðveislu við börn og ungmenni. Liðveisla felst í því að rjúfa félagslega einangrun og aðstoða
einstaklinginn við að taka þátt í ýmis konar uppbyggilegu tómstundastarfi s.s. útivist og
hreyfingu. Hver einstaklingur fær u.þ.b. tvær til fjórar klst. á viku í liðveislu.
Sumarafleysingar í stuðningsþjónustu við fatlað fólk. Tekið er á móti umsóknum til 1. apríl nk.
Hæfniskröfur
• Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Íslenskukunnátta
• Ökuréttindi eru æskileg
Stöðurnar eru lausar frá og með 1. mars 2019 eða eftir nánari samkomulagi, umsóknarfrestur
er til 29. janúar nk. Störf við liðveislu eru laus nú þegar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðbjörg Gunnarsdóttir, í síma 470 0700 og á netfangi
[email protected]. Umsóknareyðublöð má fá á heimasíðu Fljótsdalshéraðs og einnig á
skrifstofu Fljótsdalshéraðs.