Sumarafleysing í Sundhöll

Sumarafleysing í íþróttamannvirkjum á Seyðisfirði en um er að ræða bæði íþróttamiðstöð og sundhöll.

Starfið snýst um þjónustu við notendur stofnananna og dagleg störf við mannvirkin.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
  • Þjónusta við gesti og almenn afgreiðsla
  • Allar almennar ræstingar
  • Uppgjör í lok vaktar
  • Ýmis önnur störf

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af þjónustustörfum æskileg
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og drifkraftur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni
  • Hreint sakavottorð
  • Eldri en 18 ára

Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugaverði.

Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.

Öllum umsóknum skal fylgja rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðrún Kjartansdóttir í síma 776 4194 og á netfanginu [email protected].

Umsækjendum er bent á að kynna sér færðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsælkjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til og með 26. mars 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Sumarafleysing í Sundhöll | Sundhöll Seyðisfjarðar (alfred.is) eða á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“.

Secret Link