Sumarafleysing Fjarðabyggð / Heilbrigðisstofnun Austurlands

Móttökuritari – Fjarðabyggð – heilsugæsla – SUMARAFLEYSING 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu hjá HSA í Fjarðabyggð. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Símsvörun og vinna með afgreiðslukerfi við móttöku skjólstæðinga.

Hæfnikröfur
Gerð er krafa um stúdentspróf, þekkingu og vald á að vinna upplýsingar á tölvutæku formi, gild almenn ökuréttindi, kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli, tölulæsi og færni í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

 

Hjúkrunarfræðingur – Fjarðabyggð – heilsugæsla – SUMARAFLEYSING 2020

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingar í heilsugæslu Fjarðabyggðar.

Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi

Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg vinna hjúkrunarfræðings í heilsugæslu.

Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pétursdóttir – gudrunp@hsa.is – 470-1422 & 618-1904
Emil Sigurjónsson – emil@hsa.is – 470-3053 & 895-2488

Fjarðabyggð Heilsugæsla
Strandgötu 31
735 Eskifjörður

Smelltu hér til að sækja um starfið