Sumarævintýri 2023

Spennandi sumarstörf!

Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í kerskála, steypuskála og skautsmiðju í álverinu við Reyðarfjörð. Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum sem bjóða upp á góðan frítíma. Launin eru góð, starfsfólk hefur aðgang að mötuneyti og boðið er upp á akstur til og frá vinnu.

Heildarlaun sumarstarfsmanna eru að meðaltali rúmlega 727.00 krónur á mánuði fyrir 148 klukkustunda vinnu með vaktaálagi, frammistöðuávinningi, ferða-, frágangs- og undirbúningsgreiðslum, orlofi, orlofsuppbót, desemberuppbót og fæðishlunnindum.

Sumarstarfsfólk þarf að geta unnið samfellt í a.m.k. tvo og hálfan mánuð og möguleiki er á áframhaldandi starfi. Umsækjendur verða að hafa náð 18 +ara aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.

Almennar hæfniskröfur

  • Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni
  • Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi
  • Sterk öryggisvitund og áverkni
  • Heiðarleiki og stundvísi

Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sæklja um. Frekari upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í síma 470 7700 eða á [email protected]. Áhugasöm eru hvött til að sækja um sem fyrst en hægt er að sækja um störfin á www.alcoa.is. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður þeim öllum svarað. Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 14. apríl.

Fríðindi í starfi

  • Hádegismatur
  • Vinnufatnaður
  • Rútuferðir

 

Secret Link