Stuðningsfulltrúi við Grunnskóla Reyðarfjarðar
Um er að ræða u.þ.b. 80% starf fyrir skólaárið 2026-2027. Í skólanum eru um 200 börn í 1. – 10. bekk. Leitað er að einstaklingi sem er reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.
Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar. Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.grunnrey.is
Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingamöguleika.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Námslegur stuðningur við nemendur á unglingastigi með áherslu á íslensku, stærðfræði, tungumál og raungreinar.
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við bekkjarkennara og foreldra.
- Hefur hagsmuni nemenda að leiðarljósi, sýnir hverjum og einum virðingu, áhuga og umhyggju.
- Stuðningsfulltrúi starfar undir stjórn deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
- Faglegur styrkleiki í íslensku, stærðfræði og tungumálum.
- Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu er skilyrði.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Ábyrgð í starfi og stundvísi.
- Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum.