Stuðningsfulltrúi – Menntaskólinn á Egilsstöðum

Stuðningsfulltrúi – Menntaskólinn á Egilsstöðum

Menntaskólinn á Egilsstöðum auglýsir eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í 70% starf stuðningsfulltrúa fyrir skólaárið 2020-2021

70% staða stuðningsfulltrúa til eins skólaárs
Helstu viðfangsefni stuðningsfulltrúa eru
• Aðstoða nemendur með ákveðnar greiningar við athafnir í daglegu lífi á skólatíma.
• Fylgja nemendum í kennslustundir (bundnir tímar og verkefnatímar) og aðstoða þau við námið eftir áætlun frá kennurum.
• Ýta undir færni og sjálfstæði nemenda í námi og daglegum störfum með því að hvetja þá til að gera sjálfir og hrósa þeim.
• Aðstoða nemendur við að fylgja reglum um hegðun og umgengni í skólanum.
• Aðstoða nemendur við að klæðast og matast eða aðrar athafnir daglegs lífs ef þess þarf.
• Vinna gegn neikvæðri hegðun nemenda samkvæmt leiðbeiningum frá kennara.
• Aðstoða nemendur við gerð vinnuáætlana.
• Sitja teymisfundi/undirbúningsfundi/foreldrafundi eftir því sem við á.
• Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur.

Þættir sem horft er til við ráðningu eru t.d.
• Stuðningsfulltrúa eða félagsliða nám
• Reynsla af störfum með fatlaða í skólakerfinu
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, góð þjónustulund og þolinmæði.

Laun fara eftir stofnanasamningi skólans við SFR. Viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst 2020.

Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun og staðfestingar þar um, fyrri störf og meðmælendur. Skilyrði er að viðkomandi sé með hreint sakavottorð. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðublöðum.

Umsóknarfrestur rennur út 18. júní n.k. og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Auglýsing þessi gildir í 6 mánuði.

Fyrirspurnir og umsóknir skal senda á netfangið [email protected] eða eftirfarandi heimilisfang:

Menntaskólinn á Egilsstöðum
b/t skólameistara,
Tjarnarbraut 25,
700 Egilsstaðir.

Skólameistari

Secret Link