Stuðningsfulltrúi í afleysingu

Stuðningsfulltrúi óskast til starfa við Fellaskóla. Um 100% afleysingarstarf er að ræða í 5-6 vikur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Við erum að leita að metnaðarfullum og kröftugum einstaklingi sem er tilbúinn til að vinna með börnum og unglingum á uppbyggjandi hátt.

Næsti yfirmaður er skólastjóri Fellaskóla

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir
  • Aðstoða nemendur í skólastarfi
  • Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara, deildarstjóra stoðþjónustu og skólastjóra
  • Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu
  • Starfar einnig með börnum í frístund

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stuðningsfulltrúanám eða sambærilegt nám æskilegt
  • Góð samskkipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum og auðvelt með að eiga samskipti við þau

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðokomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2022.

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningarbréf.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðurnar. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Fellaskóla þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakakrá hjá Ríkissaksóknara.

Sótt er um starfið á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir „störf í boði“ eða á starfasíðu Múlaþings hjá Alfreð: www.mulathing.alfred.is

Nánari upplýsingar veitir Anna Birna Einasdóttir skólastjóri í síma 470 0636 eða á netfanginu [email protected]

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is