Stjórnandi í Timbur endurvinnslu á Eskifirði

Tandrabretti ehf Óskar eftir að ráða starfsmann til að annast þróun, viðhald og stýra timburendurvinnslu á Eskifirði.

Timburendurvinnsla Tandrabretta á Eskifirði endurvinnur úrgangstimbur og breytir í húsdýraundirburð og eldsneyti. Áætlað er að auka við afurðategundir á næstu misserum.

Við leitum að metnaðarfullum einstakling í krefjandi starf, í verksmiðju sem er ætlað að þróast og stækka á næstu misserum.

Starfsvið: Annast viðhald,endurbætur og þróun á endurvinnsluverksmiðju. Annast verkstjórn við framleiðslu og bera ábyrgð á gæðamálum.

Hæfniskröfur: Að hafa þekkingu og reynslu af viðhaldi véla. Nám í iðngreinum ss. Rafvirkjun, velvirkjum osv er kostur en ekki skilyrði.

Að hafa útsjónarsemi og góða hæfileika til að hanna verkferla. Lipurð og festa í samskiptum.

Nánari upplýsingur um starfið gefur Einar Birgir Kristjánsson framkvæmdastjóri. [email protected]. Umsóknum skal skilað á sama netfang

Secret Link