STÖRF VIÐ LEIKSKÓLANN EYRARVELLI.

Laust er til umsóknar 100% starf í afleysingu á deildum og einnig í ca.40% afleysinga- og skilastaða frá 13:30 til 16:30. Leikskólinn er 6 deilda leikskóli fyrir börn frá eins árs aldri..

Menntun, reynsla og hæfniskröfur:

  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Góð tök á íslensku máli æskileg.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Starfslýsing starfsmaður leikskóla.pdf

Leitað er að starfsmanni sem er reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áhersla er lögð á samstarf og samvinnu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélag. Umsóknarfrestur er til og með 25.janúar 2022. Umsækjendur af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um störfin gefur Halla Höskuldsdóttir leikskólastjóri [email protected].

Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér.

Secret Link