Störf hjá Fjölskyldusviði Fjarðabyggðar

Heimaþjónusta II
Félagsleg liðveisla I
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða starfsfólk til að sinna félagslegri
heimaþjónustu og stuðningi (liðveislu) fyrir börn í sumarfrístund Fjarðabyggðar.

Hæfniskröfur í Heimaþjónustu II:
· Sjálfstæði í faglegum vinnubrögðum
· Frumkvæði, skipulagshæfni og samviskusemi
· Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni
· Geta til að taka þátt í og stjórna breytingum
· Áhugi á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum
· Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
· Gott ef starfsmaður er með bílpróf og bíl til umráða (ekki skilyrði)

Hæfniskröfur í Félagslegri liðveislu I:
· Áhugi á að vinna með fólki á öllum aldri
· Mikilvægt er að starfsmenn skilji og tali íslensku
· Hreint sakavottorð
· Sjálfstæði í faglegum vinnubrögðum
· Frumkvæði, skipulagshæfni og samviskusemi
· Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni
· Áhugi á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum
· Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli

Við bjóðum upp á:
Fullt starf og hlutastörf
Möguleika á áframhaldandi starfi í haust
Umsóknarfrestur er 11. maí. Æskilegt er að geta hafið störf ekki síðar en um
mánaðamótin maí/júní. Sótt er um starfið á ráðningarvef Fjarðabyggðar
starf.fjardabyggd.is.

Nánari upplýsingar veitir Verkefnastjóri Búsetuþjónustu
Fjölskyldusviðs, Guðrún Lilja Magnúsdóttir [email protected]
eða í síma 470-9000.

Secret Link