Stöðvastjóri á Austfjörðum
Kaldvík leitar að öflugum og reyndum einstaklingi til starfa sem Stöðvarstjóri við sjókvíaeldi félagsins á Austurlandi.
Megintilgangur Stöðvarstjóra er að skipuleggja daglegan rekstur, tryggja árangur og skilvirkni í rekstri eldisstöðva.
Við hvetjum þig til að sækja um ef þú hefur áhuga á að taka þátt í spennandi uppbyggingu á ört vaxandi fyrirtæki með mikið af tækifærum.
Kaldvík samanstendur af sameinuðum félögum: Ice Fish Farm/Fiskeldi Austfjarða, Laxar Fiskeldi, Rifós og Búlandstindur
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á framleiðslu og verkstjórn í samstarfi við framleiðslustjóra
- Leiða og hvetja starfsmenn í átt að sameiginlegum markmiðum og hámarks framleiðslu
- Tryggja að verkefni séu unnin í samræmi við áætlanir, verkferla og í samræmi við gæða- og öryggiskerfi
- Skráningar og skýrslugerðir
- Tryggja öryggi og velferð fisks og fólks
- Tryggja öryggi og góða umhirðu á vinnustað
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla og/ eða þekking á seiðaeldi eða tengdum störfum
- Menntun sem nýtist í starfi
- Gæða-, heilsu-, umhverfis- og öryggisvitund
- Leiðtogafærni og verkefnastjórnun
- Frumkvæði, áhugi og metnaður
- Góð samskiptafærni og jákvætt hugarfar
- Geta til að vinna sjálfstætt og í teymum
Fríðindi í starfi
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Fæðishlunnindi
- Heilsu- og menntunarstyrkir