STARFSMAÐUR VIÐ ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINA Á REYÐARFIRÐI
Fjarðabyggð auglýsir eftir karlkyns starfsmanni til starfa við Íþróttamiðstöðina á Reyðarfirði. Starfið gegnir mikilvægu hlutverki í þjónustu við börn og fullorðna sem sækja íþróttamiðstöðvar á eigin vegum eða á vegum skóla. Rík áhersla er lögð á góða samskiptahæfileika, sveigjanleika og þjónustulund.
Helstu verkefni:
- Eftirlit og gæsla með notendum íþróttamiðstöðvar.
- Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum þar sem reknar eru sundlaugar
- Aðstoð við skólabörn, fyrir og eftir kennslu.
- Almenn afgreiðsla.
- Allar almennar ræstingar í Íþróttamiðstöðinni
- Þvottur á handklæðum og sundfatnaði.
- Taka á móti og leysa úr/koma áleiðis öllum ábendingum sem berast frá viðskiptavinum.
Hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af þjónustustörfum.
- Tungumálakunnátta til að geta þjónustað erlenda gesti.
- Námskeið í skyndihjálp.
- Góð samskiptafærni, sveigjanleiki og þjónustulund
Starfslýsing starfsmaður íþróttamannvirkis
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Allar frekari upplýsingar veitir Magnús Árni Gunnarsson, deildarstjóri íþróttamannvirkja, [email protected] eða í síma 470 9000.
Umsóknarfrestur er til og með 28.febrúar. Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér