Starfsmaður óskast hjá þjónustumiðstöð Vopnafjarðar
Starfsmaður í Þjónustumiðstöð Vopnafjarðar.
Áhaldahús sveitarfélagsins er þjónustumiðstöð þess og sinnir fjölbreyttum verkefnum,
s. s. viðhaldi á götum og gangstéttum, frárennsliskerfi og ýmiskonar uppbyggingu ásamt
snjómokstri. Auk þess heyrir vinnuskóli sveitarfélagsins undir miðstöðina yfir sumartímann.
Vopnafjarðarhreppur óskar eftir að ráða starfsmann í þjónustumiðstöð. Um er að ræða 100% starf.
Starfssvið:
• Vinna við umhirðu og viðhald eigna sveitarfélagsins
• Vinna við viðhald veitna, gatna, snjómokstur, sláttur ofl. störf sem þjónustumiðstöð sinnir
• Vinna með vinnuskóla og sumarvinnufólki
Menntun og hæfni:
• Iðnmenntun sem nýtist í starfi æskileg
• Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
• Vinnuvélaréttindi/ökuréttindi er skilyrði
• Gerð er krafa um frumkvæði, drifkraft, snyrtimennsku, skipulögð og fagleg vinnubrögð, getu til að
vinna sjálfstætt ásamt hæfni í mannlegum samskiptum. Sveigjanleiki varðandi vinnutíma er
nauðsynlegur t.d þegar kemur að snjómokstri.
Umsóknarfrestur er til og með 29. mars 2019.
Launakjör samkvæmt kjarasamningi stéttarfélaga við Samband íslenskra sveitarfélaga. Umsóknum ásamt ferilskrá
skal skila á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps Hamrahlíð 15 eða sent rafrænt á [email protected]
Upplýsingar um starfið veitir:
Oddur Pétur Guðmundsson í síma 473-1423 eða [email protected]